Gat ekki handtekið berbrjósta konu

Geir Jón Þórisson er líklega kunnasti lögreglumaður þjóðarinnar á seinni árum en hann verður gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli í kvöld og segir frá ríflega 40 ára ferli sínum í svarta búningnum af einlægni og hirpursleysi.


Geir Jón byrjaði lögregluferilinn í Eyjum en þangað flutti hann með konu sinni strax eftir gos og tók þátt í samfélagi einurðar og uppbyggingar. Hann lýsir því eftirminnilega hvernig var að vera lögga í návígi við fámennið; hversu erfitt var að koma inn á brotin heimilin drykkjufólks á jólum og sjá vanrækt börnin á aðfangadagskvöld, ellegar þegar hann var að stilla til friðar á fyllerínu inni á verbúðunum en þar hugðist hann einu sinni reyna að handtaka konu sem lét mjög ófriðlega, vildi helst ekki járna hana innan um allan fjöldann og tók því til þess bragðs að halda þéttingsfast utan um hana sem tókst raunar ekki betur en svo að konan gat smokrað sér úr hrömmum hans svo eftir sat þar peysan og bolurinn - og fyrir framan hann berbrjósta konan. Þá fraust Geir Jón og gat ekki meir.


Hann segir frá eineltinu í æsku og hvernig var að vera sonur öskukarlsins sem var sannfærður Hvítasunnumaður, en Geir Jón reyndi hvað hann gat til að fjarlægast trúna og gera lítið úr henni, enda bannaði hún strákum á hans aldri að fara í bíó eða aðrar skemmtanir. Og ekki bætti úr skák á þessum tíma að hann stækkaði um 10 sentimetra á ári og var að sögn þeirra sem stríddu honum mest alveg klofinn upp að öxlum.


Geir Jón ræðir líka veru sína á Alþingi og hvernig hann varð forviða á vinnubrögðunum þar, en hann kveðst vera jafnaðarmaður enda þótt hann sé varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins - en umfram allt sé hann þó öfgalaus mannvinur sem hafi í starfi sínu viljað vera hið milda yfirvald, hvort heldur var úti í Eyjum eða í búsáhaldabyltingunni í Reykjavík þar sem honum reyndist best að bjóða fólki í nefið.


Mannamál í kvöld er frumsýnt klukkan 20.00.