Garðabær og hafnarfjörður greiða gistináttagjald

Garðabær og Hafnarfjörður munu framvegis greiða gistináttagjald fyrir íbúa sína sem þurfa að gista í gistiskýlum Reykjavíkurborgar. Kópavogur mun taka ákvörðun um málið í næstu viku. Vísir.is greinir frá.

Í nóvember síðastliðnum samþykkti velferðarráð Reykjavíkurborgar að setja gjaldskrá fyrir gistingu í gistiskýlum fyrir íbúa annarra sveitarfélaga. Íbúar Reykjavíkur greiða ekkert fyrir þjónustuna en nóttin kostar nú 17.500 krónur fyrir íbúa annarra sveitarfélaga.

Reykjavíkurborg hefur lengi talað fyrir því að önnur sveitarfélög taki þátt í kostnaði við þjónustu fyrir heimilislausa. Í fyrra gistu alls 301 í gistiskýlunum og af þeim voru 58 einstaklingar með lögheimili utan Reykjavíkur. Þessir 58 einstaklingar gistu í alls 624 nætur í gistiskýlum borgarinnar og íbúar Kópavogs gistu helming náttanna, 277 nætur.

„Peningurinn fer í rekstrarkostnað. Við erum að borga í dag um 200 milljónir fyrir tvö gistiskýli og svo er þriðja skýlið að bætast við í Grandagarði þannig við verðum komin með yfir fimmtíu pláss í neyðarskýlum,“ segir Regína Ásvaldsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar í samtali við fréttir Stöðvar 2.

Með þriðja gistiskýlinu er gert ráð fyrir að rekstrarkostnaður hækki upp í 300 milljónir. Ef öll sveitarfélög leggjast á eitt gætu gistináttagjöld numið um 11 milljónum króna. Regína segir það ekki hátt hlutfall af heildarkostnaðinum en að það muni um allt.