Garðabær er dýrasti skólabærinn á landinu, en Eyjamenn heimta aftur á móti lægstu fjárhæðina fyrir skyldunámið í bænum að því er fram kemur í nýrri verðlagskönnun Alþýðusambands Íslands.
Verðlagseftirlit sambandsins kannaði breytingar á gjaldskrám frá árinu 2017 – 2018 fyrir skóladagvistun, hressingu og hádegismat í skólunum. Mikill munur er á kostnaði við skóladagvistun og skólamáltíðir hjá sveitarfélögunum en hæst eru gjöldin fyrir skóladagvistun ásamt hádegismat og hressingu hjá Garðabæ eða 37.114 kr. en lægst hjá Vestmanneyjum eða 24.360 kr. Munurinn nemur 12.754 kr. á mánuði sem gera 127.540 kr. á ári miðað við 10 mánaða vistun og er þetta 52% verðmunur.
Verðhækkanir sveitarfélaganna á kostnaði fyrir 1 barn í skóladagvistun með hressingu og hádegismat þetta árið eru á bilnu 1-4,6%. Mesta hækkunin á heildarkostnaði er í Kópavogi en þar er nemur hækkunin 4,6% en Reykjavík kemur í humátt á eftir með 4,5% hækkun og Akraneskaupsstaður með 4,3% hækkun. Gjöldin hækka ekkert milli ára í Hafnafirði, Reykjanesbæ og Vestmanneyjum.
Mikill munur er á milli sveitarfélaganna á heildarkostnaði við skóladagvist barna þar foreldrar eru með börn í frístund, hádegismat og síðdegishressingu. Þannig borgar foreldri í Garðabæ með barn í frístund og hádegismat í skólanum 12.754 krónum meira á mánuði en foreldri í Vestmanneyjum en það gerir 127.540 krónur á ári (miðað við 10 mánaða vistun) og er það munur upp á 52%. Seltjarnarnes er með önnur hæstu gjöldin eða 36.297 kr. og Akureyri með þriðju hæstu gjöldin, 35.721 kr. Eins og fyrr sagði býður Vestmanneyjabær upp á lægstu gjöldin á 24.360 en Reykjanesbær býður upp á næst lægstu gjöldin á 24.565 kr. sem er einungis 205 kr. hærra en gjöld Vestmanneyja. Reykjavík kemur síðan á eftir Reykjanesi með þriðju lægstu gjöldin, 27.279 kr.