Reykjavíkurborg hefur ákveðið að setja upp gangbrautarvörslu fyrir skólabörn við gangbraut yfir Hringbraut við Meistaravelli. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. Í gær var greint frá því að ekið var á barn við téða gangbraut og Reykjavíkurborg bregst því snögglega við.
Í tilkynningunni kemur fram að gæslan muni hefjast við upphaf hvers skóladags og er áætlað að hún standi fram á vor. Slys hafa átt sér stað á Hringbrautinni við gangbrautarljósin og er öryggi gangandi vegfarenda þar ábótavant.
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur, segir að umferðaröryggi gangandi vegfarenda sé algjört forgangsmál hjá borgaryfirvöldum. „Það verður að lækka hámarkshraðann í götunni og bæta öryggi gangandi vegfarenda við allar gönguþveranir. Það skilar okkur mestum árangri ásamt því að bæta lýsinguna í götunni. Það verður einfaldlega ekki unað lengur við núverandi ástand, öryggi barna er ofar öllu“, segir Sigurborg.
Ákveðið hefur verið að boða til samráðsfundar í næstu viku. Á fundinn verða boðuð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Vegagerðin sem er veghaldari Hringbrautar, Samgöngustofa, samgönguskrifstofa Reykjavíkurborgar og íbúasamtök hverfisins.