Talið er að 1 af hverjum 6 einstaklingum þjáist af ófrjósemi en vandinn hefur verið feimnismál í gegnum tíðina.
Í þessari viku, 26. febrúar – 3. mars standa samtökin Tilvera fyrir vitundarvakningu um ófrjósemi sem gengur undir heitinu #1af6.
Tilvera eru samtök um ófrjósemi sem var stofnað fyrir nærri þrjátíu árum síðan. Félagsmenn eru fólk alls staðar að úr samfélaginu sem á það sameiginlegt að glíma við ófrjósemi af einhverju tagi. Félagið styrkir fólk á margvíslegan hátt sem glímir við þennan vanda.
Á miðvikudag verður m.a. gengið með barnavagna í laugardal og vagnarnir verða tómir sem táknrænn gjörningur fyrir málefnið. En í kvöld, mánudag er karlar sérstaklega hvattir til að hittast á kaffihúsi sem nánar er tilgreint á heimasíðu samtakanna, tilvera.is
Tilvera, samtök gegn ófrjósemi var stofnuð 19. nóvember 1989 og hefur stjórn Samtakanna í gegnum tíðina komið að ýmist konar stefnumótun í málaflokknum.
Helstu baráttumál Tilveru séu að fyrstu fimm frjóvgunarmeðferðir verði niðurgreiddar, að fólk sem á barn saman fái líka niðurgreiddar meðferðir og að sálfræðiþjónusta sé í boði eins og kemur fram í lögum um tæknifrjóvganir. Sálfræðiþjónustan er eitt af því sem Tilvera leggur enn fremur mikla áherslu á.
Tilvera var stofnuð 19. nóvember 1989 og stendur félagið stendur fyrir reglulegum fræðslufundum fyrir félagsmenn og hittast félagsmenn á oformlegra spjalli mánaðarlega.