Gamli landsbankinn

Umfangsmikið bónuskerfi eignarhaldsfélagsins LBI sem heldur utan um eignir gamla Landsbankans var gangsett undir árslok 2016.

Hluthafar LBI eru nánast eingöngu erlendir fjárfestingasjóðir.

Bónuskerfi LBI er útfært af þessum erlendu eigendum og hefur starfskjaranefnd þessara eigenda umsjón með bónusgreiðslum til íslenskra stjórnenda LBI og tryggja þannig að greiðslur séu í samræmi við skilmála bónuskerfis LBI.

Heildareignir LBI eru rúmar 824 milljónir evra. Það er jafnvirði 95 milljarða íslenskra króna.

Líkast til mun LBI umbreita öllum eignum LBI í reiðufé og greiða það svo út til erlendu hluthafana á næsta ári.  

rtá

Nánar www.visir.is  www.ruv.is