Gamalt pils gerði kraftaverk á Þarnæstabar

Aðhaldsátak Önnu Kristjánsdóttur bar heldur betur árangur um helgina. Hringbraut hefur fylgst nokkuð vel með megrunarátaki vélstjórans, en hún hefur misst ófá kílóin á síðustu mánuðum.

Nú rifjar Anna upp pilsakaup í Edinborg fyrir nokkrum árum.

„Fyrir nokkrum árum síðan var ég stödd í Edinborg í Skotlandi, einum af mínum uppáhaldsstöðum í heiminum og álpaðist inn í verslun og sá þar gullfallegt pils. Það var plíserað gyllt og grátt, náði niður að hnjám og teygja í mittið. Samt var eitthvað sem var ekki eins og það átti að vera. Það var á mörkum þess að vera of þröngt. Ég keypti það samt vitandi það að ég myndi megra mig í pilsið, en svo gerðist eitthvað. Skömmu síðar átti ég í erfiðleikum með að komast í pilsið, læsti það inni í skáp og svo liðu árin,“ segir Anna á Facebook síðu sinni. Pilsið hafi svo dottið í fang hennar í síðasta mánuði þegar hún var að pakka niður fyrir Tenerife ferð. Pilsið hafi loksins smellpassað eins og reyndar mikið af gömlum fötum sem hún hafði hætt að nota.

Okkar kona dreif pilsið með sér til Tenerife. „Reyndar átti ég engar blússur né boli sem pössuðu við pilsið svo ég gæti notið glæsileika míns. Um daginn átti ég erindi í Siam Mall og keypti þar boli sem ég taldi að gætu komið að gagni,“ segir Anna og þá er komið að rúsínunni í pylsuendanum:

„Í gærkvöldi ákvað ég að skreppa á Þarnæstabar í pilsinu og öðrum nýja bolnum og sló í gegn. Ekki aðeins stelpurnar hrifust af nýju múnderingunni, heldur voru strákarnir líka byrjaðir að flauta á eftir mér. Við tökum samt ekkert mark á Matthew, hann flautar á eftir öllum pilsum. Eins gott að þeir sjái ekki öll hin plíseruðu pilsin sem ég á í fataskápnum.“

Daginn ætlar Anna að nota í sýna uppáhaldsiðju en hún spáir því að hitinn á Tene verði kominn yfir 30 gráður um hádegisbil.

„Það stefnir í Selfosshita í Paradís í dag. Hitinn var kominn í 26°C við sólarupprás í morgun og fer hlýnandi, verður væntanlega kominn í yfir 30°C fyrir hádegið. Best að nota tækifærið og gera það sem mér þykir best að gera og liggja í leti, óþarfi að slíta sér út við göngur eða fjallaklifur. Það getur beðið betri tíma.“