Gamall draumur rætist í gufunesi

Baltasar Kormákur og kvikmyndafyrirtækið hans, RVK Studios hefur samið við Reykjavíkurborg um kaup á landi og byggingum til að reisa kvikmyndaver í Gufunesi. Málið kemst betur á skrið í ágúst nk. Leitað er nú fleiri fjárfesta í verkefnið.

Kaupverðið eru rúmlega 300 milljónir króna, keyptar eru fjórar byggingar hjá gömlu Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi, yfir 8 þúsund fermetra rými alls. Svæðið allt er rúmlega 19 þúsund fermetrar. Slíkt kvikmyndaver færir kvikmyndagerð hér á landi, hvort sem er á vegum Íslendinga eða erlendra aðila, á nýtt plan. Í samtali við Lindu Blöndal á Hringbraut sagði Baltasar að þetta væri eðlilegt framhaldsskref fyrir Ísland sem kvikmyndagerðarland. Viðtal við Baltasar verður í þættinum Lífið á Hringbraut í kvöld klukkan 20.