Galopinn skattakrani í ráðuneytinu

„Skatttekjur og tryggingagjöld námu 301 milljarði króna á fyrri helmingi árs og voru 4,7% umfram áætlun.“ Þetta er orðrétt tilvitnun í frétt í Fréttablaðinu í dag. „Meira en tuttugu prósent færri fá vaxtabætur nú en á síðasta ári og er Þorgerður í þeim hópi. Hún rekur raunarsöguna sína í Þjóðbraut í kvöld.“ Og þetta er bein tilvitnun í frétt á hringbraut.is, frá því gær.

Fáir hafa gagnrýnt skattastefnu ríkisstjórnarinnar meira en ritstjóri Morgunblaðsins. Vonbrigði þar, sem og víðar, um skattastefnuna eru mikil.

Í frétt Fréttablaðsins segir einnig: „Innheimtar tekjur ríkisins á fyrri helmingi ársins voru tæplega 401 milljarður króna. Það er 25% aukning frá sama tímabili í fyrra.“

Þenslan á vinnumarkaði hefur mikil áhrif þar sem jákvæða frávikið liggi að mestu í tekjuskatti einstaklinga, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti sem hafi aukist, meðal annars vegna aukins kaupmáttar.

Skattheimtan er mikil og ríkissjóður bólgnar út. Á sama tíma gerist þetta: „Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands er harðorð í garð stjórnvalda vegna niðurskurðar og fálætis og tómlætis sem hún segir að sé gagnvart skólanum. Meðal annars sé húsnæði skólans í miðborginni í hripleku ástandi og engin áform eru um að bæta þar úr, í skólastofum er ekki að finna innstungur hvað þá sjálfsagðan tölvubúnað til kennslu.“ Þetta er aðeins hluti þess sem Fríða Björk sagði í Þjóðbraut á Hringbraut í gærkvöld.