Galopin flóttaleið frá veiðigjöldum

Sjávarútvegsráðherra hefur galopnað flóttaleið, fyrir margar og þá einkum stærstu útgerðir landsins, frá veiðigjöldunum. Leiðin er greið. Flestar þær útgerðir, ef ekki allar, kaupa fisk af eigin skipum og eru nánast einráðar um hvaða verð er borgað. Sem þýðir að útgerðin ræður hvar hagnaðurinn verður. Með því að lækka verð til skipanna, og þar með til sjómanna sem munu að óreyttu lækka mikið í launum, flyst hagnaðurinn í fiskvinnsluna sem nú verður undanþegin veiðigjöldum. Einfalt og öruggt.

Nánar á

www.midjan.is