Gallup: fylgi vg rýkur upp þessa dagana

Vinstrihreyfingin grænt framboð virðist hagnast mest á atburðum síðustu dægra ef marka má nýja könnun Gallup sem gerð var dagana 4. til 6. apríl, en þar kemur fram að fylgi VG er komið upp í nærfellt 17%. Björt framtíð bætir einnig við sig fylgi en fylgi Pírata og Samfylkingar minnkar.

Næstum 17% þeirra sem tóku afstöðu segjast myndu kjósa Vinstri græn sem er um sex prósentustigum meira en í mars. Fylgi flokksins hefur ekki mælst eins hátt síðan í júlí 2011. Tæplega 6% segjast myndu kjósa Bjarta framtíð sem er rúmum tveimur prósentustigum meira en í mars. Fylgi við Pírata dalar um nær fjögur prósentustig en rösklega 32% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi við Samfylkinguna dalar um tvö prósentustig og segjast nú tæplega 8% myndu kjósa flokkinn.

Ekki er tölfræðilega marktæk breyting á fylgi annarra flokka frá síðustu mælingu. Nær 22% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, næstum 11% Framsóknarflokkinn, rúmlega 3% Viðreisn og tæplega 2% aðra flokka.  Nær 11% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og 8% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.