Galið tombóluverð á raforkunni okkar

\"Að selja alla þessa verðmætu orku á þessu tombóluverði er galið,\" skrifar Jón Steinsson, hagfræðingur og prófessor við Columbia-háskólann í Bandaríkjunum og endurtekur orðið: \"Galið.\"

Þetta skrifar hann í tilefni af árskýrslu Landsvirkjunar sem nú liggur fyrir, svo sem lesa má um í annarri frétt Hringbrautar frá því í ggærdag, en þar kemur fram að raforkusala fyrirtækisins hefur aldrei verið meiri en á síðasta ári, en aftur á móti liggur einnig fyrir að sala þess til stórnotenda, þar á meðal álfyrirtækja á borð við Alcoa og Norðuráls er við lægra verði en oft áður. Það skýrist á lækkun álverðs á undanförnum árum, en meðalverð raforku til stóriðnaðar er nú 24,4 bandaríkjadalir á megawattið sem er vel undir því sem það hefur verið á fyrri árum.   

\"Ég skil það að samningar voru gerðir í fortíð þegar orkan okkar var ekki jafn verðmæt,\" skrifar Jón á fésbók sína í dag: \"En nú þurfum við að snúa við blaðinu og koma okkur í stöðu til þess að selja þessa orku á miklu hærra verði.\"

Og hann er bjartsýnn fyrir hönd landsmanna: \"Ef okkur tekst það mun það gjörbreyta lífskjörum á Íslandi.\"