Galið að stefna blaða­manni

Þingmaður Vinstri grænna, Kolbeinn Óttarsson Proppé, segir það galið að Seðlabankinn stefni blaðamanni Fréttablaðsins fyrir dóm fyrir það eitt að biðja um upplýsingar. Málið verður þingfest klukkan eitt í dag í Héraðsdómi Reykjaness.

Þetta er aðeins brot úr umfjöllun Fréttablaðsins. Smelltu hér til að lesa meira.

„Alveg er það galið að opinber stofnun stefni blaðamanni fyrir dóm fyrir það eitt að vinna vinnuna sína og biðja um upplýsingar,“ segir Kolbeinn í færslu á Facebook. „Opinber stjórnsýsla á að starfa eftir þeirri almennu reglu að allt sé uppi á borðum og gögn opinber. Á því geta vel verið undantekningar sem þarf þá að skýra það sérstaklega og ef úrskurðarnefnd gúterar það ekki, þá á að virða þann úrskurð.“

Þetta er aðeins brot úr umfjöllun Fréttablaðsins. Smelltu hér til að lesa meira.