Heiðar Guðjónsson fjárfestir skrifaði nýlega grein í Morgunblaðið um fjárhagsstöðu Seðlabankans en eftir 113 milljarða króna gengistap á gjaldeyrisforðanum er eiginfjárstaða bankans um 5 prósent. Skiptir það máli eða er þetta eingöngu bókhaldslegt tap? Heiðar segir gjaldeyrisforðann vera alltof stóran og vextir of háa. Heiðar segir að Már Guðmundsson Seðlabankastjóri eigi að víkja.