Gagnvirkur þáttur um fasteignamál

Þátturinn Afsal hefur göngu sína á Hringbraut í kvölen þar er ætlunin að rýna í fasteignamálin frá ýmsum sjónarhornum, eigendum fasteigna til upplýsingar og fræðslu.

Þættinum er öðru fremur ætlað að gefa hagnýt ráð fyrir þá sem eru að hugsa sér til hreyfings á fasteignamarkaðnum, en þar blanast saman fréttatengd umræða, almennar upplýsingar um sölumálin, endurfjármögnun eigna, lögbundnar tryggingar, verkfall lögfræðinga og margt fleira sem mun setja svip sinn á þættina.

Þáttastjórnandi er Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingaveitunnar Spyr.is, en hún hvetur áhorfendur til að senda inn fyrirspurnir til Spyr.is og hafa þannig áhrif á umræður í þáttunum.

\"Það er oft sagt að ævisparnaðurinn okkar liggi í fasteignunum okkar og þetta eru því án efa ein mikilvægustu kaupin sem við gerum á lífsleiðinni. Við þekkjum það frá Spyr.is að fólk hefur eðlilega margar spurningar og vangaveltur um kaup og sölu fasteigna og þetta er því spennandi viðfangsefni að ræða til hlítar,” segir Rakel um þáttinn.

Gestir verða fjórir löggiltir fasteignasalar frá fjórum mismunandi fasteignasölum á höfuðborgarsvæðinu en þeir eru: Ásdís Valsdóttir hjá Húsaskjóli, Davíð Ólafsson hjá Fasteignasölu Reykjavíkur, Guðbergur Guðbergsson hjá Fasteignasölunni Bæ og Guðrún Antonsdóttir hjá Garún fasteignamiðlun.

Í þættinum mun Ragnar Trausti Ragnarsson verða í hlutverki þeirra sem huga að sínum fyrstu kaupum. Ragnar mun þá fara á stúfana og ræða við sérfræðinga um hvaða valkostir eru í stöðunni.

Afsal verður á dagskrá Hringbrautar klukkan 21.00 á fimmtudagskvöldum.