Gagnsærra val á stjórnarmönnum

Magnús Harðarson, aðstoðarforstjóri Nasdaq Iceland, segir í viðskiptaþætti Jóns G. sem frumsýndur var í gærkvöld að tillögur um að koma á fót tilnefningarnefndum í mörgum félögum hafi vakið athygli sína í hrinu aðalfunda að undanförnu. „Ég tel þetta jákvætt skref fyrir íslenskan hlutabréfamarkað enda er gert ráð fyrir tilnefningarnefndum í leiðbeiningum um stjórnarhætti. Slíkt fyrirkomulag færir val á stjórnarmönnum í gagnsærri og markvissari farveg,“ segir Magnús.

Þátturinn er endursýndur í dag og einnig aðgeengilegur á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.