Gagnrýnir slitaaðferð gunnars braga

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, segir aðspurð að hún hafi ekki verið hrifin af þeirri leið sem utanríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson valdi, þegar hann með bréfi tók einhliða ákvörðun um að slíta samband Íslands við ESB.

Þetta kom fram í fréttatengda sjónvarpsþættinum Kvikunni á Hringbraut í gær en þáttinn má í heild sjá hér.

Í þættinum var fjallað um þá þversögn að á sama tíma og góðæri einkennir efnahaginn er leitun að eins róstusömu ári í pólitíkinni eftir hrun og árið 2015. Ríkisstjórnin tapar fylgi og deilur um ójöfnuð og ólýðræði skóku fréttaumræðu en samt er þjóðin bjartsýnni nú en um nokkurt skeið samkvæmt mælingu Gallup.

Áslaug sagðist vel skilja miðað við stefnu stjórnarflokkanna tveggja að samleið með ESB væri ekki á dagskrá en gera mætti athugasemdir við hvernig slitin bar að í meðförum Gunnars Braga.

Margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, þar á meðal Bjarni Benediktsson formaður flokksins og fjármálaráðherra, sögðu fyrir síðustu þingkosningar að atbeina þjóðarinnar þyrfti til að stíga næstu skref eftir að Vinstri stjórninni mistókst að láta klára samning við ESB og bera undir þjóðina á grunni umsóknar sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur samþykkti með umdeildum hætti.

Sú breyting varð að veruleika samkvæmt fylgismælingum í kjölfar slita Gunnars Braga fyrir tæpu ári að mikil mótmælaalda reis í samfélaginu vegna þess að hvorki þing né þjóð hafði um niðurstöðuna að segja, 8000 manns komu saman á mótmælafundi og í kjölfarið fór fylgi Pírata að stóraukast og er enn í hæstu hæðum.