Gagnrýnir skilanefnd glitnis, ríkisútvarpið og smámiðla

Ingibjörg Pálmadóttir, eigandi Torgs ehf. sem gefur út Fréttablaðið, kemur fram í viðtali í Fréttablaðinu í dag. Ekki er tilgreint hver höfundur viðtalsins er, en umfjöllunarefnið er staða kvenna á vinnumarkaði og reynsla Ingibjargar af því að vera kona í stjórnunarstöðu. Þá gagnrýnir hún fjölmiðla fyrir að láta að því liggja að hún sé „einhvers konar hliðarsjálf“ eiginmanns síns, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.

Jón Ásgeir var einnig viðmælandi Fréttablaðsins í grein eftir ritstjóra þess, Ólöfu Skaftadóttur, sem birtist á dögunum. Þar var fjallað um tillögu 365 hf. og annarra smærri hluthafa í Högum þess efnis að kosningar til stjórnar færu fram með margfeldiskosningu. Jón Ásgeir var á meðal frambjóðenda til stjórnar Haga en náði ekki kjöri. Hann veitir fjölmiðlum sjaldan viðtöl, en í frétt Ólafar lýsti hann nauðsyn þess að „vernda minni hluthafa“ í Högum og sagði margfeldiskosningu vera lýðræðislegasta kosningakerfið sem hlutafélagalög byðu upp á. 

Nánar á

https://stundin.is/grein/8330/