Gagnrýnir pólitík óttans

„Það er ríkt í mörgum að trúa flestu illu upp á aðra,“ segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins í pistli sinum á hringbraut.is og beinir þar spjótum sínum að órökstuddu lýðskrumi. Hún bendir á að stundum skapist einfaldlega jarðvegur fyrir pólitík „sem byggir á ótta við eitthvað sem maður þekkir ekki.“ Og þingkonan bætir við: „Mikilvægur grundvöllur slíkrar pólitíkur er að stimpla fólk í hópa og koma þannig í veg fyrir að fólk verði dæmt að verðleikum.“ Ragnheiður segir til mikils að vinna ef landsmenn geti reynt að sýna í verki umburðarlyndi og virt það hvernig innflytjendur hafi styrkt og auðgað íslenskt samfélag með margvíslegum hætti. Fólk verði að sýna umburðarlyndi og dæma hvert annað af verkum sínum fremur en trúarbrögðum eða uppruna. Pistil Ragnheiðar er að finna í heild sinni í pistladálki forsíðu hringbrautar.is.