\"Starfsmönnum Isavia er í lófa lagið að skoða brottfararspöld þessa fólks og athuga hvort það er að spara sér gistingu eða að bíða eftir næturflugi,\" segir Steinþór Jónsson hótelstjóri í Keflavík um þann vanda sem blasir við í Leifsstöð sem er nú krökk af sofandi ferðafólki um nætur.
Vandi þessi hefur farið stigvaxandi á allra síðustu mánuðum, enda flogið svo að segja allan sólarhringinn til og frá Keflavíkurflugvelli eftir að ferðafólki til landsins fjölgaði um meira en helming á hálfum áratug. Búist er við 25% fjölgun þeirra í ár samanborðið við síðasta ár - og munu þá ein milljón og 250 þúsund erlendir ferðamenn koma til landsins 2015, en þeir voru aðeins hálf milljón árið 2010.
Steinþór segir það veikja ímynd Leifsstöðvar að sjá allt þetta ferðafólk, sem margt hvert er að spara sér gistingu síðustu nóttina fyrir brottför af landinu, liggjandi hvert innan um annað á göngum og sölum Leifsstöðvar. Stólar og bekkir séu til þess ætlaðir að bíða eftir flugi, ekki gólfið. Þar fyrir utan sé nóg af gistirými á svæðinu, þar af mörg mjög ódýr pláss á gistiheimilum, en alls telur hann vera um 800 gistipláss í grennd við Keflavíkurflugvöll. \"Það eru 37 aðilar sem bjóða upp á gistingu á svæðinu í dag, en ég var einn árið 1986,\" segir hann og gagnrýnir linkind Isavia í þessu máli; Leifsstöð megi ekki við því illa umtali sem fylgi svona útgangi.