Bergvin Oddsson, fyrrverandi formaður Blindrafélagsins, sem verið hefur blindur frá unglingaaldri, er nýlega fluttur aftur til heimahaganna í Vestmannaaeyjum og segir þar farir sínar ekki sléttar; ferðaþjónusta fatlaðra á vegum bæjarins sé öll í skötulíki.
Bergvin stingur hér niður penna og lýsir reynslu sinni með eigin orðum: \"Í öllum sveitarfélögum hér á landi er ferðaþjónusta fatlaðra og er markmið þjónustunnar á að tryggja fötluðum einstaklingum að komast á milli staða í bæði leik og starfi. Mörg sveitarfélög bjóða upp á fyrirmyndar ferðaþjónustu þar sem þjónustan er veitt á forsendum þeirra sem nota þjónustunna. Þar er notast við leigubifreiðir sem notendur geta hringt í á þeirri stundu þegar þeir þurfa akstur. Í Vestmannaeyjum og reyndar í öðrum sveitarfélögum er þessu algjörlega öfugt farið. Þar er þjónustan á forsendum þeirra sem veita þjónustuna, en þar er hún er aðeins í boði á ódýrasta tímanum frá kl 07:30 til ca 17:00 virka daga. Þess fyrir utan er enginn ferðaþjónusta í boði, svo sem við á um Vestmannaeyjar. Þá þurfa þessir örfáu notendur að greiða sjálfir fullt gjald leigubíls eða eru algjörlega niðurlægðir og þurfa biðja vini og vandamenn um náð og miskvun til að aka sér.\"
Og Bergvin heldur áfram: \"Margir súpa hveljur þegar þeir heyra að fötluðum bjóðist að notfæra sér leigubifreiðar í stað þess að nota stóran ferðaþjónustubíl. Staðreyndin er sú að leigubílaþjónusta er um þriðjungi hagkvæmari í rekstri fyrir sveitarfélögin í stað þeirrar úreltu gamaldags ferðaþjónustu, þegar notendur þurfa að bóka ferð með minnst sólahrings fyrirvara oft á tíðum - og þurfa sömuleiðis að fara á nokkra viðkomustaði áður en þeir komast á sinn áfangarstað. Einn ferðaþjónustubíll kostar um 10 milljónir króna og þá á eftir að reka bílinn með tilheyrandi kostnaði auk starfsmanns til þess að taka á móti símtölum notenda og skipuleggja akstur ferðaþjónustubílsins. Hvað getið þið ímyndað ykkur að það sé hægt að taka marga leigubíla í Vestmannaeyjum fyrir 10 milljónir króna á ári? Já 7.500 leigubíla ef hver ferð kostar 1.500 krónur að meðaltali.\"
Bergvin segir munin á leigubílum og rútum gríðarlegan: \"Ferðaþjónusta Blindrafélagsins á höfuðborgarsvæðinu er þannig að notandi greiðir í dag eitt strætisvagnafargjald, alls krónur 420 fyrir ferðina. Hreyfill/bæjarleiðir gefur um 20% afslátt og sveitarfélagið greiðir mismuninn. Könnun á vegum Blindrafélagsins leiddi í ljós að nær allir félagsmenn vildu greiða eitt strætisvagnafargjald fyrir að eiga kost á leigubílaþjónustu í stað þess að greiða ekkert gjald eða hálft strætisvagnafargjald og notast við gamaldags hefðbundna ferðaþjónustu. Ferðaþjónusta Blindrafélagsins er ekki eingöngu hagkvæmari í rekstri heldur er hún mun sveigjanlegri þjónusta, en með þeim takmörkunum að aðeins er hægt að nýta sér hana innan höfurborgarsvæðisins og einnig geta einstaklingar ekki fengið niðurgreiddar nema 60 ferðir í mánuði nema sérstakar aðstæður búi að baki.\"
Hann gagnrýnuir Elliða Vignisson, bæjarstjóra í Eyjum og segir að hann hafi áhuga á að kynna sér ferðaþjónustu Blindrafélagsins: \"Á haustmánuðum sendi ég Elliða tölvubréf þar sem ég kynnti fyrir honum þá frábæru og hagkvæmu leigubílaþjónustu sem mörgum fötluðum einstaklingum stendur til boða með kostnaðarþátttöku sveitarfélaganna. Þar rakti ég fyrirkomulag þjónustunnar á vegum Blindrafélagsins ásamt því að fjalla um osti hennar og takmarkanir þjónustunnar. Til viðbótar bauðst ég til að hitta bæjarstjórann til þess að kynna fyrir honum betur þessa nútímalegu ferðaþjónustu fatlaðra sem svo margir fatlaðir eiga kost á. Það er mjög dapurt að segja frá því að Elliði Vignisson hefur enn ekki svarað tölvubréfi mínu tæpum þremur mánuðum síðar.\"
En Bergvin kveðst ekki ætla að gefast upp: \"Í nóvember óskaði ég eftir því við fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja að fá allt að 60 leigubílaferðir í mánuði til að nota á höfuðborgarsvæðinu og í Vestmannaeyjum. Þeirri beiðni var hafnað á þeim forsendum að þessi þjónusta félli ekki undir reglur bæjarins um ferðaþjónustu. Mánuði síðar óskaði ég eftir að fá allt að 25 leigubílaferðir í mánuði, aðeins í Vestmannaeyjum. Þeirri beiðni var hafnað á nákvæmlega sömu forsendum. Ég hef ákveðið að skjóta synjun nefndarinnar til Úrskurðarnefndar velferðarmála félagsmálaráðuneytisins. Verði þeim úrskurði ekki snúið við sé ég mig knúinn til þess að leita réttar míns fyrir dómstólum til þess að knýgja á um að lögblindur tveggja barna faðir í háskólanámi og í eigin atvinnurekstri sé kleyft að vera virkur þáttakandi í samfélaginu og lifa innihaldsríku og ábyrgu lífi.\"