Séra Hildur REir Bolladóttir prestur í Akureyrarkirkju gagnrýnir þá reglu Þjóðkirkjunnar harðlega að prestar hennar hafi sjálfdæmi um það hvort þeir gefi saman samkynhneigð pör eða ekki. Biskup Íslands vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu.
Hildur Eir segir í samtali við Fréttablaðið í dag það vera hreinan dónaskap við fólk og mannréttindi þess að prestar af öllum mönnum hafi rétt til þess að neita sumu fólki um hjúskaparvígslu. "Þjónusta okkar prestanna við náungann getur ekki verið háð fordómum okkar. Þetta er í raun fordómafrelsi frekar en samviskufrelsi. Það er ekki hægt að gefa prestum rými til að þjóna út frá fordómum sínum."
Aðrir prestar undir miðjum aldri taka undir þessa skoðun Hildar Eirar, svo sem Kristín Þórunn Tómasdóttir í Laugarneskirkju og Sigurvin Lárus Jónsson æskulýðsprestur sem segja þessa reglu um sjálfdæmi presta í hjúskaparvígslu vera úr takti við tímann og úr takti við hlutverk presta; prestur í þjónustu Þjóðkirkjunnar eigi ekki undir nokkrum kringumstæðum að geta neitað fólki um þjónustu.
Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands hefur ekki viljað tjá sig um þetta efni en fyrir fáum árum taldi hún þá presta sem neita að gefa saman samkynheigt fólk hafa fullt leyfi til þess.