Fríða Hammer, starfsmaður heimaþjónustu Kópavogs, lýsir vonbrigðunum sem fylgdu því að mæta samningslaus aftur til vinnu eftir að verkfalli Eflingar gagnvart Sambands Íslenskra Sveitarfélaga (SÍS) var frestað.
Fríða ræddi aðstæður sínar í hlaðvarpi Eflingar, Unnið heima... hjá öðrum. Hún sagði að af augljósum ástæðum væri ekki mögulegt fyrir starfsfólk heimaþjónustunnar að vinna heiman frá og vegna þeirra fordæmalausu aðstæðna sem nú ríktu væri ætlast til mikils sveigjanleika af þeirra hálfu.
Traðkar á launafólki
Það vakti talsverða gremju að slíkar kröfur væru gerðar þar sem að SÍS hafi ekki sýnt neinn sveigjanleika í samningaviðræðum við Eflingu. Þannig væri ætlast til að konurnar sem sinntu starfinu ynnu „skítverkin á lægstu laununum.“
Gagnrýnin beindist einkum að framgöngu formanns SÍS, Aldísi Hafsteinsdóttur, í fjölmiðlum. „Það var ógeðslega fúlt að horfa á svona konu koma fram í sjónvarpi og traðka á manni. Maður er bara eins og skíturinn undir skónum hennar,“ sagði Fríða í hlaðvarpinu.
Þakklætið sést ekki á laununum
Fríða kveðst þó elska starf sitt sem felst í þrifum og aðkallandi þjónustu fyrir þá sem þurfa á henni að halda. Hún segir fólkið sem hún sinnir vera hennar bestu vini og segist ávallt gleðjast við þakklætið sem þau sýni henni fyrir störf sín.
Það þakklæti endurspeglast þó ekki að hennar mati á launaseðli hennar. Fríða er í 80 prósent vinnu og fær um 260.000 þúsund útborgað ef fæðispeningar og akstur milli staða er tekin inn í reikninginn. Hún hefur lagt það í vana sinn að borða í bílnum á milli heimsókna enda sé tíminn naumur.
Báðir hnefar á loft
Eftir að hún kom aftur til vinnu eftir verkfallið hefur segist hún ekki hafa verið jafn samvinnuþýð og áður. „Ef þeir sýna engan sveigjanleika í viðræðunum við okkur finnst mér ekki að við þurfum að sýna þeim neinn sveigjanleika.“
Þegar skólarnir byrja að nýju í haust mun kjarabaráttan halda áfram og kveðst Fríða ætla að leggja sitt af mörkum í baráttunni. „Það verður ekki bara annar hnefinn heldur báðir.“ Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér.