Gagnrýnin á fullan rétt á sér

„Það eru strax komnar upp umræður um þetta, ýmislegt sem var fyrirsjáanlegt en annað sem er dýpri gagnrýni sem á fullan rétt á sér. Þær veiðar sem við höfum stundað á stórhvölum, sem tekur núna eingöngu til langreyðar og hrefnu, þær eru byggðar á vísindalegri ráðgjöf, þær eru sjálfbærar, það er eftirlit með þeim og þær eru í samræmi við alþjóðalög,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða.

Kristján Þór var gestur Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut á mánudagskvöld.

Helstu niðurstöður skýrslunnar voru eftirfarandi: „Þegar allt er skoðað virðast hvalveiðar vera hluti af hagkvæmri nýtingu náttúruauðlinda landsmanna. Rök hníga til þess að hagkvæmt sé fyrir þjóðarhag að haldið verði áfram að veiða hvali.“

Þessar niðurstöður eru umdeildar og hefur m.a. Andri Snær Magnason rithöfundur gagnrýnt skýrsluna, auk þess sem Landvernd mótmælti málflutningnum sem kemur fram í skýrslunni harðlega og skoraði á Hagfræðistofnun að draga hana til baka.

„Úttekt Hagfræðistofnunar er alfarið á hennar ábyrgð. Hún fékk verkbeiðni og átti að skila okkur skýrslu um þetta mál og svo bera þeir ábyrgð á sinni skýrslu og verða að tala fyrir hana,“ segir Kristján Þór.

Viðtalið í heild sinni er að finna hér: