Gagnrýna úthlutun lóðar til æskuvinar

Byggingarverktakar á höfuðborgarsvæðinu eru afar gagnrýnir á lóðaúthlutanir á eftirsóttu svæði ofan við Smáralindina í Kópavogi þar sem hesthúsahverfi var áður, en þeir fullyrða í samtali við hringbraut.is að Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri hafi látið stóran hluta lóðanna í hendur æskuvinar síns.


Verktakarnir sem hringbraut.is hefur haft samband við vegna þessa vilja ekki koma fram undir nafni af ótta við að missa spón úr aski sínum en hlutur Kópavogsbæjar í lóðaúthlutun á höfuðborgarsvæðinu er afar stór. Þeir undrast hins vegar mjög að lóðum undir 40 íbúðir í Lindaherfinu hafi verið úthlutað til Leigugarða ehf en það fyrirtæki, sem er í eigu æskuvinar bæjarstjóra Kópavogs, sé langt frá því að vera jafn stöndugt, áreiðanlegt og stórt og mörg önnur þau byggingarfyrirtæki sem sóttust eftir lóðum á sama stað. Þau hyggjast fara fram á rökstuðning fyrir úthlutuninni, en eitt byggingarfélag hefur þegar leitað til lögfræðings og hefur hann sent bæjaryfirvöldum bréf þar sem óskað er eftir skýringum á úthlutuninni.


Á svæðinu eru í boði sex lóðasvæði við Álalind og Bæjarlind í slakkanum austur af Smáralind sem er einhver eftirsóttasti byggingarstaður í nýrri miðju höfuðborgarsvæðisins. Lóðir fyrir alls 211 íbúðir voru í boði á svæðinu og fékk Leigugarðar fimmtung þeirra í sinn hlut, alls 40 íbúðir við Álalind 14.


Verktakarnir sem helst gagnrýna þessa úthlutun segja að með engu móti sé hægt að skilja eftir hverju hafi verið farið við úthlutina fyrst gengið var framhjá sterkum og virtum félögum sem hafa unnið sér inn gott orðspor en þess í stað hafi verið veðjað á áðurnefnt félag; ekki þurfi annað en að líta til sögu þess til að sjá að samanburðurinn er því mjög í óhag. Einn viðmælandi Hringbrautar gekk svo langt að fullyrða að viðkomandi aðili myndi selja aftur byggingarréttinn og hagnast verulega á því.