Gianluca Esposito, sérfræðingur á vegum GRECO, samtaka ríkja gegn spillingu, segist hafa fundið fyrir augljósum tengslum á milli flokks og löggu í nýlegri heimsókn sinni til Íslands, en samtökin hafa almeennt gagnrýnt það hve stjórnsýslan hér a landj og stofnanir þess eru óvarðar gagnvart pólitísku áhrifavaldi.
Og nú bætir Esposito um betur í Fréttablaðinu í dag þar sem hann segir það berum orðum að samtökin hafi fundið fyrir þeirri ásýnd í vettvangsferð sinni til Íslands hversu sterk og rótgróin tengsl séu á milli íslenskra löggæsluyfirvalda og tiltekins stjórnmálaflokks og fyrir því muni vera sögulegar ástæður: \"Tilfinningin er að það þyki jákvætt að vera virkur þátttakandi í þessum tiltekna flokki,\" segir Esposito í blaðinu og bætir við að GRECO hafi einnig orðið áskynja um þau viðhorf innan lögreglunnar að ákjósanlegt þyki fyrir frama innan löggæslunnar að hafa góð tengsl við að vera meðlimur í viðkomandi stjórnmálaflokki.
Esposito nefnir ekki hvaða flokk hann eigi við í blaðaviðtalinu, en augljóst má vera að þar á hann við Sjálfstæðisflokkinn, enda segir hann að lokum að samtökin hafi fengið upplýsingar og dæmi um tilvik innan lögreglunnar þar sem þessi hætta af pólitískum afskiptum hafi raungerst með beinum afskiptum ráðherra af störfum lögreglunnar.
Án nokkurs vafa á hann þar við afskipti Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, þáverandi dómsmálaráðherra af lekamálinu svokallaða, en þrýstingur ráðherrans á þáverandi lögreglustjóra í því máli leiddi ekki einasta til afsagnar Hönnu Birnu, heldur einnig til þess að Stefán Eiríksson kvaddi embætti sitt með bítlasöng á vörum, svo sem frægt varð að endemum.