Sjómannasamband Íslands, Félag vélstjóra og málmtæknimanna, Félag skipstjórnarmanna og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa í sameiningu sent frá sér áskorun til stjórnvalda. Þar eru stjórnvöld hvött til að endurskoða fyrirhugaðar skerðingar á fjárframlögum til Hafrannsóknastofnunar.
Í áskoruninni segir að sá árangur sem hafi náðst í fiskveiðistjórnun á Íslandsmiðum grundvallist á rannsóknum. Margir fiskistofnar við Ísland séu nýttir á sjálfbæran hátt og stærri stofnar leiði til þess að auðveldara verður að veiða fiskinn og veiðarnar verði umhverfisvænni. „Víða um heim líta menn til reynslu Íslendinga af stjórn fiskveiða, sem byggst hefur á vísindalegri nálgun. Þar hefur Hafrannsóknastofnun verið í forystu- og lykilhlutverki og Íslendingar ættu að vera stoltir af framlagi hennar. Að hlúa að stofnuninni er því bæði nauðsyn og skylda.“
Í áskoruninni segir einnig: „Það er óskiljanlegt að stjórnvöld hyggist draga svo máttinn úr stofnuninni að henni verði í raun meinað að sinna þeim grundvallarrannsóknum, sem sjósókn Íslendinga byggist á. Skerðing fjármuna vekur ekki síst furðu í ljósi þess að íslenskur sjávarútvegur í heild sinni greiðir tugi milljarða til hins opinbera á ári hverju. Veiðigjaldið, eitt og sér, nam hátt í 11,5 milljörðum króna í fyrra. Lögum samkvæmt er gjaldinu, meðal annars, ætlað að standa undir kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn, eftirlit og umsjón með fiskveiðum og fiskvinnslu. Það er miður að löggjafinn fylgi ekki þeirri reglu sem hann sjálfur hefur sett.“
Loks er ákvörðun stjórnvalda um fyrirhugaðan niðurskurð kölluð skammsýni. „Það eru miklu meiri heildarhagsmunir fólgnir í því að styðja við og efla rannsóknir en að stefna þeim í voða. Þannig rísum við undir þeirri ábyrgð sem okkur er falin í umgengni við sjóinn.“