Gagnrýna sjálftöku ríkisstofnunar

Samtök atvinnulífsins gagnrýna harðlega enn eina hækkun fasteignamats á vegum Þjóðskrár Íslands og segja ólíðandi að ríkisstofnu hafi sjálfdæmi um ákvörðun af þessi tagi sem auki skattbyrði fyrirtækja um 1,3 milljarða króna.

Í tilkynningu frá samtökunum í dag segir að Þjóðskrá Íslands hafi nú birt nýtt fasteignamat sem taka eigi gildi í janúar 2016. Hækkun mats á atvinnuhúsnæði sé nú 2,4%. Á síðasta ári hafi fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækkað um 12,4% en enn þá meira á stórum hluta verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu eða um 18%. 

Síðar segir: \"Samtök atvinnulífsins telja að ríkisstofnun geti ekki ein og sér tekið ákvörðun um að breyta áratugalangri framkvæmd sem hækkar um leið skattbyrði atvinnulífsins um milljarða króna án þess að mælt sé fyrir um slíkt í lögum. Samtökin telja jafnframt mikilvægt að skorið verði úr um lögmæti breytinganna í dómsmáli sem hefði þá fordæmisgildi fyrir allt atvinnulífið. SA hafa aflað gagna sem nýst geta í slíku máli.\"

Samtök atvinnulífsins benda fasteignaeigendum á að kynna sér breytingar á mati eigna sinna og að nýta sér heimild til að gera athugasemdir vegna þess fyrir 1. september nk. Fjölmörg dæmi eru um fasteignir þar sem matið hækkaði um og yfir 100% milli ára. Fyrir stór fasteignafyrirtæki geti hækkun fasteignagjalda í kjölfarið numið tugum milljóna króna á ári.