Félagsmenn í Bandalagi háskólamanna hafa sent frá sér harðorða ályktun þar sem þeir gagnrýna Landlækni fyrir þau orð hans að setja eigi lög á verkfall heilbrigðisstarfsmanna sem eru innan bandalagsins.
Nýr Landlæknir, Birgir Jakobsson hefur undanfarna daga látið í sér heyra vegna ástandsins á Landspítalanum og raunar öðrum heilbrigðisstofnunum og segir það enda vera hlutverk sitt að fylgjast með því að þar fái landsmenn heilbrigða þjónustu. Hann segir að starfsfólk á sjúkrastofnunum hafi aðeins eina skyldu og hún lúti að velferð sjúklingsins. Honum hafi sýnst að farið hafi verið á svig við þá skyldu á undanförnum vikum, enda komist veikt fólk ekki í rannsóknir eða nauðsynlega meðferð og skapi ástandið kvíða og vanlíðan hjá fjölda fólks.
Í ályktun Bandalags háskólamanna vegna þessara orða, sem sögð eru vera ámælisverð, er Landlæknir vændur um að hafa ekki kynnt sér allar hliðar málsins; hann hafi ekki reynt að skoða málið frá þeirri hlið sem snýr að félagsmönnum BHM - og það sé ólíðandi að taka svo harða afstöðu í vinnudeilu á kostnað eins af málsaðilum hennar.