Gagnrýna framferði lögreglu gegn hælisleitendum

Hópur hælisleitenda kom saman á Austurvelli í gær, mótmælti stöðu sinni og kallaði eftir samtali við stjórnvöld. Lögreglan gekk harkalega fram og beitti hluta fólksins piparúða. Logi Einarsson, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Gunnar Smári Egilsson eru meðal þeirra sem gagnrýna framferði lögreglunnar. DV.is greinir frá.

Vitað er til þess að allavega tveir þingmenn hafi komið út af Alþingi og gefið sig á tal við hælisleitendurna. Þetta voru þau Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, og Gísli Garðarsson, varaþingmaður Vinstri grænna, sem tók einmitt sæti fyrir Andrés Inga Jónsson í gær.

Síðar um daginn mótmælti um 40 manna hópur fyrir utan lögreglustöðina að Hverfisgötu eftir að tveir úr hópnum voru handteknir við mótmælin að Austurvelli.

Skilja ekki hörku lögreglunnar

„Í dag varð ég vitni að óvenju harkalegum viðbrögðum lögreglu, gagnvart hóp í afar veikri stöðu, sem hugðist tjalda á Austurvelli og vekja athygli á málstað sínum. Ég minnist ekki að tiltölulega fámennum mótmælum hafi áður verið mætt með slíkum aðgerðum. Ég sá a.m.k. ekkert sem gaf tilefni til slíks,“ skrifar Logi Einarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, á Facebook síðu sinni um framferði lögreglunnar.

Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, tekur í sama streng: „Hér er fólk að nýta rétt sinn til að mótmæla og erfitt er að sjá hvað kallar á þessa hörku gegn þeim. Þetta er viðkvæmasti hópurinn í okkar samfélagi og ég tel að við eigum að gera gangskör í því að bæta aðbúnað hans og mæta honum með skilningi og mannúð, ekki hörku og piparúða.“

Kolbeinn vill að málið verði tekið upp á vettvangi þingsins og hyggst hann spyrjast fyrir um það á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í dag. Segist hann vilja fá leiðbeiningar um það hvort málið eigi heima á borði nefndarinnar enda hafi mótmælin beinst gegn þingi og stjórnvöldum.

Gunnar Smári Egilsson leggur einnig orð í belg og skrifar á Facebook síðu sína í gær: „Að baki fundi flóttamanna á Austurvelli var krafa um fund með ráðamönnum. Þeirri kröfu svöruðu stjórnvöld með ofbeldi lögreglunnar.“

Gunnar Smári segir að allir hljóti að skilja hversu veik staða flóttafólksins sé og geti fundið til með fólkinu. „Blessunarlega höfum við fæst upplifað svipaða stöðu. Auðvitað er til fólk sem er svo fullt haturs að það vill ekki virða viðlits þá sem veikar standa, er ekki einu sinni til í að hlýða á kröfur og sögur þeirra sem veikast standa í samfélaginu. En þannig eru fæstir. Það er því sorglegt að akkúrat þannig fólk skuli manna ríkisstjórnina.“

Kröfur hælisleitenda

Á meðal krafna hælisleitendanna eru að brottvís­un­um úr landi verði al­farið hætt, að allt flótta­fólk fái áheyrn sinna mála í kerfinu, að flóttafólk á Íslandi fái atvinnu­leyfi, að flóttafólk fái jafn­an aðgang að heilbrigðisþjónustu og að flótta­manna­búðunum á Ásbrú verði lokað.

Þeir segjast hafa óskað eftir fundi með Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra en að í stað þess að verða við þeirri beiðni hafi hún tilkynnt að hún vilji herða enn frekar á Dyflinarreglugerðinni, t.d. með því að koma í veg fyrir að flóttafólk geti fengið fjölskyldusameiningu. Þetta segja hælisleitendurnir til þess fallið að gera hælisferlið enn óbærilegra en það er nú þegar.

Logi gagnrýnir þessa fyrirætlan Sigríðar í skrifum sínum á Facebook og segir hana mikla afturför: „Þetta bætist við sífelldar þrengingar reglugerða dómsmálaráðherra í málefnum hælisleitenda og flóttamanna og boðað frumvarps hennar um sömu hópa, sem eru mikil afturför. Er nema von að maður spyrji á hvað leið stjórnvöld eru og hvort hún sé farin með samþykki VG?“