Gagnrýna allt reglufargan ríkisins

Ekkert lát er á stríðum straumi stjórnvaldsfyrirmæla að mati Samtaka atvinnulífsins, en forkólfar þess segja í tilkynningu í dag að í stjórnartíðindum birtist á hverjum degi, alla daga ársins að jafnaði fjórar nýjar reglugerðir; allt saman lög, reglur, gjaldskrár og önnur fyrirmæli "sem stjórnvöld þurfa að koma á framfæri við fólkið í landinu,"eins og það er orðað.


Frá aldamótum er fjöldi birtinga orðinn um 20 þúsund samkvæmt samantekt samtakanna. "Engin leið er að nokkur maður geti fylgst með þessu flóði sem meðal annars markar rekstrarumhverfi fyrirtækjanna," segja Björgólfur Jóhannsson formaður SA og aðrir fyrirsvarsmenn atvinnurekenda í tilkynningunni.


Stóran hluta þeirra reglugerða sem Samtök atvinnulífsins vísa hér til má rekja til aðildar Íslendinga að Evrópska efnahagssvæðinu, en þær skipanir koma sjálfkrafa inn í íslenskt regluverk, án þess raunar að Íslendingar geti haft mikil áhrif á tilurð þeirra, enda eru þeir ekki hluti af lagasetningarvaldi Evrópusambandsins.