ASÍ fagnar því i að tekist hafi sátt um að koma hér upp að nýju félagslegu leiguíbúðakerfi með áherslu á að fjölga hagkvæmum og ódýrum íbúðum fyrir tekjulágar fjölskyldur.
Þar með verður tekjulágum fjölskyldum, sem hingað til hafa ekki átt kost á íbúðum í félagslegu kerfi sveitarfélaganna, tryggður aðgangur að ódýru og öruggu leiguhúsnæði segir í tilkynningu frá Alþýðusambandinu.
Kerfið verður fjármagnað með stofnframlögum ríkis og sveitarfélaga og með beinum vaxtaniðurgreiðslum og stillt þannig af, að leiga verði ekki hærri en sem nemur 20-25% af tekjum viðkomandi fjölskyldna. Þetta er mikill áfangasigur fyrir aðildarsamtök ASÍ sem barist hafa fyrir því að koma slíku kerfi á allt frá því að verkamannabústaðakerfið var lagt af fyrir 15 árum síðan.
Samhliða þessu verður gripið til ýmissa aðgerða til að aðstoða þá sem eru á leigumarkaði og auðvelda ungu fólki að kaupa sína fyrstu íbúð. Markverðast er að frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um húsnæðisbætur verður lagt fram núna á vorþinginu, en samkvæmt frumvarpinu hækkar stuðningur við leigjendur á fasteignamarkaði umtalsvert, einkum almenns launafólks. Til að sporna gegn því að aukinn stuðningur leiði til hækkunar á húsaleigu lagði starfshópur aðila til ýmsar aðgerðir sem leitt gætu til aukins framboðs af leiguhúsnæði á almennum markaði.