Svo gæti farið að reykjagarður, eitt þriggja stærstu kjúklingabúa landsins þurfi að farga 16 þúsund kjúklingum í vikunni vegna verkfalls dýralækna sem eru innan raða Bandalags háskólamanna, BHM. Dýralæknar verða að vera viðstaddir svo slátrun dýra sé heimil.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en þar er haft eftir Matthíasi Hannesi Guðmundssyni framkvlmdastjóra Reykjagarðs, stærsta kjúklingabús landsins, að það sé grafalvarlegt að þurfa að gasa heilbrigð sláturdýr og sóa þessum verðmætum. "Þetta er hryllileg sóun," segir hann í blaðinu.
Skorts á kjúklingum kann að fara að gæta í næstu viku haldi vinnustöðvun dýralækna áfram, en samningamenn BHM segja enga hreyfingu við borðið, ekkert sé vitað hvað stjórnvöld ætli að gera til að liðka fyrir samningum og á meðan svo séhaldi menn að sér höndum.