Gætu allt eins beðið um fleiri sólskinsstundir

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir það óheppilegt að í kjarasamningum sé ákvæði sem heimili uppsagnir ef vextir fari upp fyrir ákveðið stig. „Auðvitað geta aðilar vinnumarkaðarins skrifað allt inn í sína kjarasamninga. Þeir geta sagt að ef sólskinsstundir í Reykjavík sumarið 2020 séu komnir fyrir neðan ákveðið stig að þá verði samningum sagt upp. Það er bara þeirra réttur,“ segir Már. 
 
Þetta kemur fram á RÚV.
 

Már segir þó ljóst að eftir að þessir kjarasamningar hafa verið undirritaðir sé svigrúm til vaxtalækkana. Hins vegar eigi vextir að vera hagstjórnartæki og ekki hægt að skuldbinda þá til lengri tíma.  

Nánar er fjallað um málið á RÚV.