Gæti skapast hættuástand eins og í síðasta hruni

Mjög erfitt er að kom­ast inn á hús­næð­is­mark­að­inn vegna mjög mik­illa verð­hækk­ana á skömmum tíma. Ástæða þess að hús­næð­is­mark­að­ur­inn kóln­aði mikið í sumar var meðal ann­ars sú að það var komið að þol­mörkum hjá kaup­end­um. Þetta segir Una Jóns­dótt­ir, hag­fræð­ingur hjá Íbúða­lána­sjóði, í sjón­varps­þætti Kjarn­ans á Hring­braut í kvöld klukkan 21. Þar verður hús­næð­is­mark­að­ur­inn til umfjöll­un­ar.

Una segir að fólk virð­ist hafa þanið sig mjög fjár­hags­lega til þess að kaupa hús­næði. Það sýni að það sé mjög erfitt að kom­ast inn á mark­að­inn. „Við vorum með spurn­inga­könnun og og spurðum fólk út í áform um vænt­an­leg kaup út frá skulda­stöðu. Skulda­staðan virð­ist ekki hafa nein áhrif. Fólk ætlar að reyna að kaupa til að kom­ast úr þessu óör­yggi sem er á leigu­mark­að­i.“

Þessi staða gæti haft afleið­ing­ar. „Það gæti skap­ast ein­hvers­konar hættu­á­stand ef við sjáum fast­eigna­verð allt í einu lækka og við sjáum fólk sitja eftir með yfir­veð­settar eignir eins og gerð­ist í síð­asta hrun­i.“

Ólöf Örv­ars­dóttir sviðs­stjóri umhverf­is- og skipu­lags­sviðs Reykja­vík­ur­borg­ar, er einnig gestur þátt­ar­ins. Hún útskýrir hús­næð­is­mála­stefnu­Reykja­vík­ur­borg­ar, þétt­ing­ar­á­hersl­una og þá upp­bygg­ingu sem þegar er í gangi. Í máli hennar kemur meðal ann­ars fram að til árs­ins 2020 séu um sjö þús­und íbúðir í kort­un­um.