Gæti fjölgað dómurum við landsrétt – reiknað með 500 óafgreiddum málum um áramót

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir dómsmálaráðherra útilokar ekki að dómarar verði settir tímabundið við Landsrétt eða að viðbótardómarar verði skipaðir til að vinna á uppsöfnuðum málafjölda. Eftir að Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að Sigríður Á. Andersen, forveri Þórdísar Kolbrúnar í embætti hafi ekki skipað fjóra af 15 dómurum við réttinn með löglegum hætti hafa þessir fjórir dómarar ekki verið við störf.

Í svari Hervarar Þorvaldsdóttur, forseta Landsréttar, við fyrirspurn Þórdísar Kolbrúnar um möguleg áhrif þess að dómararnir fjórir sinni ekki dómstörfum, segir hún að málsmeðferðartími mála muni halda áfram að lengjast á meðan rétturinn er ekki fullskipaður.

Í svari Björns L. Bergssonar, skrifstofustjóra Landsréttar, við sömu fyrirspurn segir hann að ófremdarástand muni skapast innan skamms því ellefu dómarar hafi ekki undan. Björn býst við því að tæp 500 mál verði óafgreidd um næstu áramót.

„Það var fyrirséð að málsmeðferðartíminn myndi lengjast en svona akkúrat eins og sakir standa að þá hef ég ekki alvarlegar áhyggjur af því,“ segir Þórdís Kolbrún í samtali við fréttastofu RÚV um helgina.

Stjórn Dómstólasýslunnar hefur í bókun, með mótatkvæði forseta Landsréttar, lagt til að brugðist verði við bráðavandanum með því að setja fjóra dómara til áramóta. Til þess að unnt sé að setja fjóra dómara til bráðabirgða verða dómararnir fjórir sem stigu til hliðar í kjölfar dóms MDE að óska eftir launuðu leyfi.

„Þeir hafa ekki gert það hingað til og á meðan að svo er þá skipum við ekki tímabundið,“ segir Þórdís Kolbrún.

Þann 9. september næstkomandi skýrist hvort nefnd skipuð af yfirdeild MDE samþykki ósk íslenska ríkisins um að endurskoða dóm sinn um að skipun dómaranna fjögurra bryti í bága við Mannréttindasáttmála Evrópu.

„Við erum að undirbúa okkur miðað við það. Það er bara auðvitað að annað hvort fallast þeir á að taka það fyrir eða ekki. Þannig að það eru þær tvær sviðsmyndir. Þá er spurning hvað annað getur gerst í kjölfarið á því. En ég geri svona frekar ráð fyrir því að málið verði tekið fyrir.“

Hugur dómaranna fjögurra stendur til að koma aftur til starfa taki yfirdeildin dóminn fyrir.