Gæti breytt áherslum í kjaraviðræðum

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir fréttir af endalokum WOW air vera afskaplega dapurlegar. Vegna þeirra segir hann félögin sex sem eiga í viðræðum við SA þurfa að breyta áherslum og skerpa á öðrum hlutum er lúta að viðræðunum. Markaðurinn, viðskiptablað Fréttablaðsins, greinir frá.

Vegna óljósrar stöðu WOW air í gær féllust VR og Efling á að fresta fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum hjá hótelstarfsfólki og starfsfólki hópbifreiðafyrirtækja, sem áttu að fara fram í dag og á morgun. Næstu verkföll eru fyrirhuguð á þriðjudaginn í næstu viku og segir Ragnar Þór í viðtali í Bítinu í morgun að stefnt sé að því að klára kjarasamningana fyrir þann dag.

Hann segir að hugur VR sé fyrst og fremst hjá starfsfólki WOW air og að fréttirnar af endalokum flugfélagsins muni koma til með að hafa ein­hver á­hrif á kjaravið­ræðurnar, en að markmiðið sé þó áfram að tryggja íslensku launafólki mannsæmandi lífskjör.

Ragnar Þór segir að félögin sem fundað hafa hjá Sam­tökum at­vinnu­lífsins hafi reiknað út sviðs­myndir færi svo að WOW hætti starfsemi. Ein svart­sýnasta spáin gerir ráð fyrir 6 prósent verð­bólgu og segir Ragnar það ljóst að fé­lögin muni þurfa að breyta á­herslum sínum og skerpa á öðrum hlutum er lúta að við­ræðunum. Þar á meðal þurfi að tryggja að heimilin í landinu taki ekki skellinn með aukinni verð­bólgu.