Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra hefur sent frá sér tilkynningu um kjördag næstu þingkosninga. Kosið verður til Alþingis þann 25. september 2021 þegar mánuður er eftir af kjörtímabilinu.
„Kjörtímabilinu líkur náttúrulega ekki fyrr en 28. október og það þarf sérstaka ákvörðun til að flýta kosningum. Ég legg þessa dagsetningu til þannig að við ljúkum kjörtímabilinu hart nær, en tökum tillit til þess að veður og færð spilli ekki kosningaþátttöku,“ segir Katrín og bendir á að dæmi séu um að færð hafi spillst þótt ekki sé komið fram í nóvember.
Ekkert náttúrulögmál að kjósa á vorin
„Ég er búin að hugsa þetta töluvert og tel að það sé ekkert náttúrulögmál að hafa kosningar að vori. Þetta er kannski bara arfleið gamals tíma og það gæti alveg eins verið farsælla að kjósa að hausti, þá eru skólar að hefjast og þjóðlífið að fara í gang eftir sumarfrí,“ segir Katrín.
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarmenn vilja kjósa í haust. Formenn flestra stjórnarandstöðuflokkanna hafa hins vegar lagt áherslu á vorkosningar og vísa bæði til hefðar og að einnig þurfi ný ríkisstjórn að hafa nægan tíma til undirbúnings fjármálastefnu og fyrstu fjárlaga.