Hér fyrir neðan má sjá myndir sem teknar voru í þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flaug yfir gossvæðið í morgun.
Eldgosið er mjög lítið og innilokað í litlum dal. Það eru góðar fréttir fyrir alla nema þá sem iða í skinninu að fá að berja gosið augum. Hólar og hæðir byrgja mönnum þannig sýn en útiloka nánast á sama tíma að hraunið geti runnið burt af svæðinu.
„Eins og staðan er núna eru þannig engar líkur á að hraunið renni eitthvað burt. Þannig að það eru engin mannvirki í hættu eða neitt slíkt,“ sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, í samtali við Fréttablaðið í morgun.
Vísindamenn eru nú á leið inn á svæðið til að mæla gasmengun. Í kjölfarið verður hægt að veita betri upplýsingar en Almannavarnir og Veðurstofa Íslands halda upplýsingafund klukkan 14.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna, fer yfir stöðuna á fundinum ásamt Kristínu Jónsdóttur frá Veðurstofu Íslands og Magnúsi Tuma Guðmundssyni frá Háskóla Íslands. Fundurinn verður sýndur í beinni útsendingu á vef Fréttablaðsins.