Hægri menn vilja helst hunda

Rétt tæp 40% íslenskra heimila státa af gæludæyrum samkvæmt nýrri könnun sem MMR birtir í dag. Hundar hafa þar vinninginn, en fimmtungur aðspurðra kvaðst vera með hund á heimili sínu, en litlu færri, eða 18% sögðust eiga kött.


Nokkra athygli vekur að þeir sem sögðust styðja ríkisstjórnina voru líklegri til að búa á heimili með hundi en þeir sem studdu ekki ríkisstjórnina. Stjórnarandstæðingar voru hins vegar líklegri til að eiga ketti. 


Könnunin var gerð um miðjan síðasta mánuð og var heildarfjöldi svarenda 1001 einstaklingar, 18 ára og eldri.