G20 orðið fyrir gagnrýni

Stefnumóti ríkisoddvita 20 helstu iðnríkja heims lýkur í Hamborg seinna í dag. Stjórnmálaskýrendur bíða þess að fá í hendir texta lokayfirlýsingar stefnumótsins.

Þar koma fram upplýsingar um hvað var rætt á stefnumótinu og hvaða mál voru leidd til lykta og hvaða mál eru en þá óleyst. 

Starfsemi og stefnumót G20 hópsins hafa orðið fyrir ákveðinni gagnrýni eins og við er að búast um stefnumót svo valdamikilla ríkisoddvita.

Sú gagnrýni snýst meðal annars um aðgerðarleysi G20 ríkjanna gagnvart aðkallandi vandamálum sem heimurinn stendur frammi fyrir svo sem loftslagsbreytingum og átökum.

Þeir sem lengst ganga í gagnrýni segja að G20 endurspegli aðeins að litlum hluta sjónarmið iðnríkjanna og að þar vanti inn ýmsar mikilvægar raddir.

 

 

[email protected]