G. pétur illur og öskraði á blaðamann: „þetta er komið gott“ - tjá sig ekki um samningaviðræður

Mikil óvissa ríkir um hvenær eða hvort nýr Herjólfur verður afhentur. Smíði skipsins er á lokametrunum en samningar á milli Vegagerðarinnar og skipasmíðastöðvarinnar Crist í Póllandi eru í uppnámi. Það gerðist eftir að Vegagerðin innkallaði bankaábyrgð sem stofnunin hafði varðandi smíði á nýjum Herjólfi.

Seinna um daginn sagði Vegagerðin að þeir hafi svo framlengt bankaábyrgðina um 30 daga. Hringbraut ræddi við G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar en hann brást illa við spurningum blaðamanns. Í samtali við Vísi sagði Björgvin Ólafsson, umboðsmaður skipasmíðastöðvarinnar hér á landi, að þessi aðgerð Vegagerðarinnar sé ígildi riftunar á samningnum. Björgvin sagði einnig að gangi ekki að klára samninga á milli aðila fái Íslendingar einfaldlega ekki skipið og það verður selt öðrum.

Ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og skipasmíðastöðvarinnar um lokagreiðslur fyrir skipið. Er nú verið að leggja lokahönd á skipið en skipasmíðastöðin hefur sent Vegagerðinni reikning upp á 1.2 milljarð króna umfram samningsupphæð vegna breytinga sem gerðar hafa verið á skipinu. Þennan reikning segir Vegagerðin að hafi enga stoð í samningi fyrir þessari kröfu.

Í samtali við Hringbraut sagði G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, að hvorugur aðilinn myndu ræða við fjölmiðla um málið að svo stöddu og að þessar samningaviðræður myndu ekki fara fram í gegnum fjölmiðla. Þegar blaðamaður Hringbrautar óskaði eftir skýrari svörum á þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin varðandi samgöngur í Vestmannaeyjum brást G. Pétur illa við og öskraði á blaðamann. Aðspurður hvort honum þætti það eðlileg viðbrögð að öskra á blaðamann fyrir að óska eftir upplýsingum um málið svaraði Pétur: „Þetta er komið gott.“ Forsvarsmenn Vegagerðarinnar hafa hingað til veitt fjölmiðlum sáralitlar upplýsingar um gang mála.

Hringbraut óskaði eftir viðaukasamningum sem gerðir voru við skipasmíðastöðina og sagði G. Pétur í fyrstu að þeir væru í hundraða tali en lækkaði svo þá tölu niður í nokkra tugi. Sagðist hann ætla að skoða hvenær hann gæti sent þessa samninga til blaðamanns, en engir viðaukasamningar hafa enn borist. Svo virðist sem enn meiri töf verði á því að Eyjamenn fái afhentan nýjan Herjólf.