1935 atkvæði hafa verið talin í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík af 5.545. Það er Hildur Björnsdóttir sem leiðir samkvæmt þeim með 964 atkvæði. Mótframbjóðandi hennar, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, er í öðru sæti eins og stendur með 820 atkvæði.
Í þriðja sæti er Kjartan Magnússon með 715 atkvæði, í fjórða Marta Guðjónsdóttir með 687 atkvæði, í fimmta sæti Friðjón R. Friðjónsson með 570 atkvæði, í sjötta sæti er Björn Gíslason með 645 atkvæði, í sjöunda er Helgi Áss Grétarsson með 740 atkvæði, í áttunda sæti er Sandra Hlíf Ocares með 804 atkvæði, og í níunda sæti er Birna Hafstein með 865 atkvæði.