Tyrkland kýs forsetaræði

Þjóðaratkvæðagreiðsla í Tyrklandi í dag er um vilja þjóðararinnar.

Hafa skal í huga að lýðveldið Tyrkland býr við ógnir sem vega að tilvist lýðveldisins og afkomu þjóðarinnar.  

Velja Tyrkir forseta sem hefur æði mikið framkvæmdavald eða ekki?  Segi meirihluti kjósenda já þá velja Tyrkir sér forseta sem hefur meira vald en forseti Tyrklands hefur nokkru sinni haft.

Ísland er og verður bandamaður Tyrklands hver sem niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar verður. 

Segi Tyrkir nei þá hafa þeir einfaldlega hafnað forsetaræði og hugmyndum flokks forsetans. Endalegar tölur liggja fyrir á morgun. Fréttaskýrendur eru á báðum áttum um hvers konar ríki Tyrkland verður á morgun. 

Þetta eru lýðræðislegar kosningar og tyrkneska þjóðin og tyrkneskir stjórnmálamenn munu á morgun lúta úrslitunum. Tyrkneska þjóðin er smám saman að ná áttum. 

Nánar www.bbc.com