Fyrstu flóttamennirnir til Akureyrar munu koma í desember. Þetta liggur fyrir eftir fund sveitarfélagsins með ríkinu í dag.
Bæjarstjóri, Eiríkur Björn Björgvinsson, fundaði með Eyglóu Harðardóttr, félags- og húsnæðismálaráðherra. Segir bæjarstjóri að fundurinn hafi verið góður.
Von er á a.m.k. einni stórfjölskyldu en fjöldi flóttamanna liggur enn ekki fyrir.
Þrettán ár eru síðan Akureyri tók við flóttafólki frá Júgóslavíu. Mál manna er að það verkefni hafi tekist vel.
Oddviti samfylkingarmanna í bæjarstjórn, Logi Már Einarsson, sagði í frétt Hringbrautar í gær að auk þess sem Akureyri bæri að horfa út fyrir landsteinana í mannúðarskyni, gerði móttaka flóttamanna bæinn bæði fjölbreyttari og skemmtilegri.
Á fundinum í dag voru rædd skólamál, atvinna, íslenskukennsla og sálgæsla svo nokkuð sé nefnt.