Fyrsti snjór í byggð fallinn

Fyrstu snjókornin féllu í byggð þetta haustið í Mývatnssveit í morgun. Hefur gránað í fjöll og viðbúið að Norðlendingar og fleiri landsmenn muni huga að vetrardekkjunum næstu daga.

Samkvæmt spá Veðurstofunnar verður vestan 8-13 m/s og skúrir eða slydduél víða um land, en norðlægari og snjóél fyrir norðan. Hæg breytileg átt á morgun og dáliltar skúrir eða él. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast SA-til, en víða næturfrost inn til landsins.