Hrafnhildur var í viðtali á RÚV í gærkvöld, þaðan sem þessi frétt er fengin, en hún er hjúkrunarfræðingur og starfar á gjörgæsludeild Landspítalans. Hún tók eftir því hvað hlutverk presta og djákna á spítalanum voru mikilvæg og við það kviknaði áhugi hennar á störfum þeirra. Hún skráði sig í guðfræði og lærði til djákna, var vígð til embættis í september og formlega sett í starf djákna í Laugarneskirkju á sunnudaginn. Hrafnhildur er fyrsta manneskjan sem vitað er að er samkynhneigð þegar hún vígist til embættis í kirkjunni.
Hrafnhildur segir við RÚV að hún geti ekki sagt til um það hvort hún sé fyrsti samkynhneigði þjónn kirkjunnar: \"Opinberlega skilst mér að það hafi í rauninni enginn áður verið vígður sem vitað var að væri í sambúð með einstaklingi af sama kyni. En ég held að ég sé ekki fyrsti vígði þjónninn sem er samkynhneigður en ég er það kannski svona út á við.“
Hrafnhildur segir við miðillinn að fólk hafi haldið að kirkjan væri á móti samkynhneigð: \"Auðvitað kannski var hún það til að byrja með. Þetta var kannski erfitt fyrir fólk að ætla sér að starfa innan kirkjunnar en átta sig á því að það væri samkynhneigt en ég held að það hafi verið meira svona grýla en að það hafi nokkurntíma verið mikið vandamál.“
Hrafnhildur kynntist Stefaníu Steinsdóttur, konu sinni í guðfræðideildinni. Stefanía er á fjórða ári í guðfræði og stefnir á embættispróf. Hún gæti orðið fyrsti opinberlega samkynhneigði presturinn, eins og segir í frétt RÚV frá því í gærkvöld.
Ljósmynd með frétt: RÚV.