Fyrsti rafknúni sendibíllinn

Veitur, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur fengu fyrir helgi nýjan hundrað prósent rafmagnsbíl sem er stærri sendibíll á Íslandi.

Er bíllinn fyrsti rafknúni sendibíllinn í þessum stærðarflokki hér á landi og munu vinnuflokkar í viðhaldsþjónustu nota hann í verkefnum út um alla borg.

Rafvæðing bílaflotans hér á landi gerist nú hratt. Sendibílar á Íslandi eru að rafvæðast líkt og fólksbílar. Fyrstir í stórum sendibílum til að nota rafmagnsbíla eru bílar Kraftvéla.