Fyrsti prófsteinn guðna

Fari svo að ríkisstjórnin komi sér saman um kosningar í haust og þingrof þá verður það fyrsta verkefni nýs forseta Guðna Th. Jóhannessonar að samþykkja það eða ekki. Sigurður Ingi hefur þingrofið í hendi sér sem forsætisráðherra. Guðni er maður málamiðlana og sátta. Hvernig mun hann taka á því ef að nær allur þingflokkur Framsóknar er á móti þingrofinu núna í haust? Það gæti orðið fyrsti prófsteinn á Guðna sem forseta hvernig hann fer með forsetavaldið.