Fyrsti dómur fellur í rússamáli trumps

 

Hollenskur lögmaður, tengdur Rick Gates, aðstoðarframboðstjóra Donalds Trump, var í dag dæmdur í 30 daga fangelsi og til að greiða 20 þúsund dala sekt fyrir að segja ósatt í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara í málum sem tengjast afskiptum Rússa af bandarísku forsetakosningunum 2016.

Lögmaðurinn, Alex van der Zwaan, er fyrsti einstaklingurinn sem hlýtur dóm í rannsókn Roberts Muellers, sem nú hefur staðið í bráðum ár.

Í yfirheyrslunum breiddi van der Zwaan meðal annars yfir samræður sem hann og Gates áttu við viðskiptafélaga þeirra í Úkraínu á meðan kosningabaráttann stóð sem hæst.

Hann hefði getað fengið allt að sex mánaða fangelsisdóm en afréð að játa sekt sína en ekki að gera samning um að aðstoða við rannsóknina, eins og nokkrir aðrir sakborningar, þar á meðal Gates, í málinu hafa gert. \"Það sem ég gerði var rangt,“ heyrðist van der Zwaan muldra við dómsuppkvaðninguna.